Nýtt! Prófaðu Málstað, vettvang fyrir allar helstu vörur Miðeindar.

Miðeind er leiðandi hugbúnaðarfyrirtæki á sviði máltækni og gervigreindar

Um okkur

Miðeind hefur unnið að máltækni og gervigreind fyrir íslensku frá árinu 2015. Tæknin okkar gerir kleift að vinna með íslenskan texta og talmál í tölvum, símum og öðrum tækjum. Meðal annars má nota hana til að vinna upplýsingar upp úr texta, lesa yfir stafsetningu og málfar, þýða texta milli íslensku og annarra tungumála, svara spurningum, búa til samantektir o.m.fl.

Mestallur hugbúnaður Miðeindar er opinn og nýtist almenningi, atvinnulífi og rannsakendum.

Merki okkar og annað myndefni má finna hér.

Á íslensku má alltaf finna svar

Máltækni og gervigreind

Á heimsvísu fleygir máltækni og gervigreind hratt fram um þessar mundir. Með tilkomu djúpra tauganeta (e. deep neural networks) og öðrum framförum í greininni hafa opnast nýir möguleikar til að vinna með texta og tal í tölvum. Meðal annars er nú mun auðveldara en áður að breyta tali í texta, að breyta texta í tal, að þýða texta milli tungumála, að búa til samantektir úr texta, að svara spurningum upp úr texta, og eiga samræðu við spjallmenni (e. chatbots), svo fátt eitt sé nefnt.

Þróunin hefur verið hröðust fyrir stærstu tungumál heims, svo sem ensku, kínversku, frönsku og þýsku. Minni tungumálin sitja hins vegar eftir nema þeim sé sinnt meðvitað og sérstaklega. Stóru upplýsingatæknifyrirtækin, þar á meðal Google, Meta/Facebook, Amazon, Microsoft, Apple og Baidu, keppast nú um að fella máltækni og gervigreind inn í vörur sínar og þjónustu. Mjög er þó misjafnt hvort tungumál á borð við íslensku séu studd og þá hversu vel.

Íslenskan á við ramman reip að draga í þessari þróun á þrennan hátt. Í fyrsta lagi er íslenski markaðurinn lítill, enda fáir sem tala tungumálið. Í öðru lagi, og þar af leiðandi, er ekki til mikið af textagögnum á íslensku, til dæmis samhliða gögnum þar sem sami texti liggur fyrir á íslensku og öðrum tungumálum. Í þriðja lagi er íslensk málfræði fremur flókin viðureignar, orðaforðinn stór og beygingarmyndir margar. Allt þetta kallar á að Íslendingar sjálfir leggist á árar við að styðja og efla tungumálið á þessu sviði, á sem opnastan hátt þannig að allir geti notið, og þá bæði innlendir og erlendir aðilar.

Miðeind vill leggja lóð á vogarskálarnar fyrir hönd íslenskunnar. Það gerum við með rannsóknum og vöruþróun, í því augnamiði að íslenskir málnotendur fái notið þeirra þæginda og þeirra möguleika sem hin nýja tækni býður upp á.

Teymið

Hjá Miðeind starfar þéttur, öflugur og fjölbreyttur hópur fólks með brennandi áhuga á máltækni og gervigreind. Við segjum stundum að við störfum á mörkum rannsókna og hagnýtingar, og þar er gaman að vera. Við reynum að hafa vinnuumhverfið frjótt og skapandi, og leitum að jafnvægi milli einbeitingar og afkasta annars vegar og afslappaðs andrúmslofts hins vegar. Yfirbyggingu og flækjustigi hvers konar, svo sem fundahöldum, er haldið í lágmarki og boðleiðir eru eins stuttar og kostur er. Vinnutími er sveigjanlegur og vinnuaðstaða fyrsta flokks; þar á meðal er eitthvert besta sjávarútsýni sem völ er á í borginni.

Vilhjálmur Þorsteinsson

Stofnandi og stjórnarformaður

Vilhjálmur er stofnandi og stjórnarformaður Miðeindar. Hann hefur verið viðloðandi íslenska upplýsingatækni í fjóra áratugi. Hann stofnaði sitt fyrsta sprotafyrirtæki árið 1983, þá 17 ára gamall, ásamt félaga sínum. Síðan þá hefur hann komið víða við á upplýsingatæknisviðinu, bæði innanlands og erlendis. Hann hefur m.a. verið stjórnarformaður leikjafyrirtækisins CCP og gagnaversins Verne, og stjórnarmaður í Kögun, Íslandssíma, Og Vodafone, Skýrr, Opnum kerfum, Hands ASA, Auði Capital, Virðingu og Kjarnanum miðlum. Þá hefur hann starfað sem hugbúnaðarhönnuður hjá CODA Group plc og Baan NV. Vilhjálmur hefur einnig fengist við ýmislegt annað í gegnum tíðina, meðal annars portrettmálun, og var einn af 25 þjóðkjörnum fulltrúum sem sátu í Stjórnlagaráði.

Linda Heimisdóttir

Framkvæmdastjóri

Linda er framkvæmdastjóri (CEO) Miðeindar og heldur utan um stjórnun og rekstur fyrirtækisins. Hún er með MA og PhD gráður í málvísindum frá Cornell-háskóla og BA gráðu í íslensku, með latínu sem undirgrein. Linda kom til Miðeindar frá Bandaríkjunum þar sem hún starfaði um árabil við verkefnastjórnun í máltæknigeiranum. Hún er mikill aðdáandi hlaðvarpa og nýtir hvert tækifæri til þess að hlusta á eitthvað fróðlegt. Henni finnst líka gaman að lesa og spila tennis.

Þorvaldur Páll Helgason

Tæknistjóri

Þorvaldur er tæknistjóri (CTO) Miðeindar og hefur yfirumsjón með tækni- og vöruþróun fyrirtækisins. Hann starfaði áður í Bretlandi, síðast hjá Apple að máltækniþróun Siri sem stjórnandi gervigreindarteymis. Þorvaldur hefur MSc gráðu í gervigreind frá Edinborgarháskóla ásamt BSc gráðu í tölvunarfræði. Honum finnst fátt betra en að njóta náttúrunnar á Íslandi og spila gott borðspil.

Elías Bjartur Einarsson

Tækniteymi

Elías Bjartur starfar í gervigreindarteymi Miðeindar og kemur þar víða við. Hann er með BA-gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands og er kominn langleiðina að MSc-gráðu í tölvunarfræði. Elías Bjartur stundar klifur, gólfglímu og útivist af miklu kappi og hefur meðal annars unnið sem landvörður og athafnastjóri.

Garðar Ingvarsson Juto

Tækniteymi

Garðar starfar sem rannsakandi innan gervigreindarteymis Miðeindar. Hann er með MSc-gráðu í reiknitölfræði og vélnámi frá UCL og BA-gráðu í tölvunarfræði frá Cambridge-háskóla. Garðar er mikill grúskari og einnig sérlegur áhugamaður um hlutverkaleiki.

Haukur Barri Símonarson

Tækniteymi

Haukur Barri er sérfræðingurinn okkar (og þótt víðar væri leitað) í djúpum tauganetum og gervigreind. Það er varla til sú markverða vísindagrein á því sviði sem hann hefur ekki lesið og skilið. Haukur Barri er með BSc gráðu í tölvunarfræði, reiknifræðilínu, og vinnur að mastersgráðu í hjáverkum.

Haukur Páll Jónsson

Tækniteymi

Haukur Páll er sérfræðingur í gervigreindarteymi Miðeindar. Hann er með mastersgráðu í rök- og reiknifræði frá Amsterdam-háskóla, BSc gráðu í tölvunarfræði og BA í heimspeki. Hann er einnig áhugamaður um rafíþróttir og klifur.

Hulda Óladóttir

Vörustjóri

Hulda er vörustjóri Miðeindar ásamt því að taka þátt í verkefnum á sviði málrýni og stoðtóla. Hún sameinar kunnáttu í forritun og djúpa þekkingu á íslenskri málfræði og stafsetningu, enda er hún fyrrverandi prófarkalesari. Hulda er með BA gráðu í almennum málvísindum og MA gráðu í máltækni, auk þess að vera liðtæk í verkefnastjórn.

Kári Steinn Aðalsteinsson

Tækniteymi

Kári Steinn er hugbúnaðarsmiður með sérstakan áhuga á notendaupplifun og vefforritun. Hann er með MSc gráðu í gagnvirkri margmiðlunartækni (e. interactive media technology) frá Konunglega tækniháskólanum í Stokkhólmi og BSc gráðu í hugbúnaðarverkfræði. Kári er mikill áhugamaður um íþróttir, tónlist, borðspil og tölvuleiki.

Pétur Orri Ragnarsson

Tækniteymi

Pétur Orri leggur lóð á vogarskálarnar í vélþýðingar- og gervigreindarteymi okkar. Hann kom til Miðeindar frá Marel þar sem hann sá m.a. um innanhúss-útgáfur GNU/Linux stýrikerfisins. Pétur er með MSc gráðu í tölvunarfræði og BSc í stærðfræði.

Róbert Fjölnir Birkisson

Tækniteymi

Róbert vinnur að hagnýtingu gervigreindar, m.a. með tengingum milli gervigreindarlíkana okkar og annars hugbúnaðar. Hann er með MSc gráðu í „Complex adaptive systems“ frá Chalmers-háskóla í Svíþjóð og BSc í hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hann er mikill prjónamaður og lestrarhestur og skemmtir sér oft í spilum og hlutverkaleikjum, en hefur jafnframt veikan blett þegar kemur að slæmum raunveruleikaþáttum.

Svanhvít Lilja Ingólfsdóttir

Tækniteymi

Svanhvít Lilja er sérfræðingur í gervigreindarteyminu okkar. Hún er með MA-gráðu í þýðingafræði og hefur meðal annars starfað sem þýðandi og prófarkalesari. Svanhvít er líka með BSc-gráðu í tölvunarfræði og MSc-gráðu í máltækni, talar reiprennandi spænsku og er öflugur skraflari.

Sveinbjörn Þórðarson

Tækniteymi

Sveinbjörn er fjölhæfur forritunarsnillingur sem er m.a. heilinn á bak við Emblu, radd-appið okkar. Það gerist aldrei að komið sé að tómum kofanum hjá honum. Sveinbjörn er sjálflærður hugbúnaðarsmiður með MSc gráðu í heimspeki og MSc gráðu í sagnfræði.

Þórunn Arnardóttir

Tækniteymi

Þórunn vinnur að málrýnilausnum Miðeindar og að mæliprófum á frammistöðu mállíkana, svo aðeins tvennt sé nefnt. Hún er með BA-gráðu í almennum málvísindum og MA-gráðu í máltækni. Þórunn var m.a. um skeið verkefnisstjóri máltækniáætlunar stjórnvalda. Hún hefur áhuga á öllu sem tengist útivist, arkitektúr og tennis.