Málstaður – máltækni fyrir íslensku
Málstaður sameinar allar helstu máltæknilausnir Miðeindar, byggðar á bestu fáanlegu gervigreindartækni fyrir íslensku, í einu notendavænu viðmóti. Með Málstað náum við fram markmiðum okkar um að íslenskt samfélag njóti ávinningsins sem fylgir nýjustu þróun í máltækni og gervigreind.
Hægt er að tengja saman ólíkar lausnir innan Málstaðar fyrir ólík notkunartilvik. Hægt er að kalla á Erlend innan Hreims og fá skjátexta við myndbönd á fjölmörgum tungumálum. Eins er hægt að taka upp fund eða fyrirlestur, fá talgreindan texta frá Hreimi og senda hann yfir í Málfríði í samantekt fyrir fundargerð eða glósur.
Málfríður – Yfirlestur og textavinnsla
Yfirlestur og leiðrétting á íslenskum texta ásamt ýmiss konar textavinnslu. Yfirlestrarvirknin hentar alls konar textum en sérstaklega vel textum frá fólki með lesblindu og fólki með annað móðurmál en íslensku. Með textavinnslu Málfríðar getur þú fengið textann á einföldu máli eða sem samantekt, til dæmis fyrir fundargerð.
Hreimur – Talgreining og skjátextun
Umbreyting á tali yfir í texta eða skjátexta. Tilvalinn til að vinna úr viðtölum eða texta myndbönd. Hreimur vinnur bæði úr hljóðskrám og myndskrám á öllum helstu skráarsniðum. Mælendagreining skiptir texta upp eftir því hver talar.
Erlendur – Þýðingar á mörgum málum
Vélþýðing milli fjölmargra tungumála. Kemur að góðum notum við að miðla efni og auðveldar fólki með annað móðurmál en íslensku að taka þátt í samfélaginu. Tekur við textaskrám á öllum helstu skráarsniðum. Notendur geta útbúið eigin orðalista til að fá samræmdari og skorðaðri þýðingar.
Snara – Orðabækur
Leitarvél fyrir yfir 2 milljónir uppflettiorða í tugum rita, m.a. Íslenskri orðabók Menningarsjóðs og samheitaorðabók. Fjölmála orðabækur milli íslensku og ensku, dönsku, pólsku, spænsku, þýsku, frönsku, ítölsku og grísku. Orðabækur Snöru eru nú aðgengilegar á vef Málstaðar í nýju sérviðmóti og inni í Málfríði og Erlendi í hliðarstiku.
Netskrafl – Orðaleikir
Leikmenn geta skraflað við miserfiða þjarka eða hvor við annan. Hægt að hafa margar viðureignir í gangi samtímis. Gáta dagsins er dagleg krossgátuþraut sem snýst um að finna stigahæstu skrafllögnina.
Nokkrar leiðir eru til að nálgast Málstað, sem þjónar nú yfir 25.000 ánægðum notendum. Kostnaði við Málstað er haldið í lágmarki, enda skiptir okkur miklu máli að íslenskt samfélag njóti ávinningsins af tækniframförum. Auðvelt er að stofna aðgang og í frjálsri áskrift fylgir þægilegt hópstjórnborð til að halda utan um hópinn.
Ókeypis aðgangur að Málstað er veglegur og gerir kleift að kynna sér virkni hans og möguleika án skuldbindingar.
Föst áskrift felur í sér aukin fríðindi, svo sem meiri innifalda notkun og rýmri aðgang, gegn lágu mánaðarlegu gjaldi.
Frjáls áskrift hentar bæði fyrirtækjum og stofnunum og svo einstaklingum sem þurfa meira en býðst í fastri áskrift. Greitt er áskriftargjald eftir fjölda notenda, sem gefur nánast ótakmarkaðan aðgang að yfirlestri Málfríðar og orðabókum Snöru. Notkunargjald er greitt fyrir aðrar lausnir innan Málstaðar, svo auðvelt er að laga Málstað að þínum þörfum. Einnig er hægt að fá API-aðgang að þjónustum Málstaðar í gegnum hópinn.