Miðeind hlýtur styrk úr Skerfi

Við erum stolt af því að tilkynna að Miðeind hefur hlotið styrk úr Skerfi. Skerfur er sjóður sem styrkir verkefni sem sem styðja við innleiðingu eða þróun hagnýtra endalausna sem byggja á íslenskri máltækni.

Verkefnið snýst um að innleiða ljóslestrarlausn inn í Málstað, efnisvinnsluvettvang Miðeindar, og gera aðgengilega sem forritaskil (API). Almennt er markmiðið að koma þróun máltækni og gervigreindar síðustu ár í hendur á endanotendum, og að ýta sem mest undir að íslenskan sé notuð. Lísa opnar aðgengi að miklu magni íslenskra gagna sem eru „læst“ í myndum og PDF skjölum. Verkefnið bætir þjónustu við öll sem skrifa og lesa á íslensku.

Einnig erum við samstarfsaðili Fjölmenntar og Miðstöðvar um auðlesið mál í öðru verkefni sem hlaut styrk.

Verkefnið gengur út á að betrumbæta lausn Miðeindar fyrir einfalt mál og ganga enn lengra í að þjónusta ólíka markhópa. Íslenska og stuðningur við hana er undirstaðan; virknin auðveldar miðlun efnis á íslensku. 

Í Málstað Miðeindar má nú einfalda texta til muna með einum hnappi. Textaeinföldunin snýst um að útbúa alhliða einfalda útgáfu af texta, til þess að gera hann aðgengilegan mörgum hópum fólks og til að útskýra flókin málefni á einfaldan hátt. Ætlunin með þessu verkefni er að ganga lengra í einföldun og bjóða líka upp á svokallað auðlesið mál, en til þess þarf að uppfylla ákveðnar og ítarlegri kröfur um framsetningu og innihald textans.

Verkefnin ríma bæði vel við markmið Miðeindar um að koma tækninni í hendur á almenningi og við hlökkum mikið til að kynna nýja virkni til leiks.

Sjá nánar: https://almannaromur.is/nytt/uthlutunskerfs2025

Skráðu þig á póstlistann okkar!

Efnisorð:
Deildu þessari grein: