Gáta dagsins: Skemmtileg viðbót við Málstað

Gáta dagsins er nýjung á Málstað, máltæknivef Miðeindar. Um er að ræða krossgátuþraut sem birtist daglega, á miðnætti. Gefin er hálfútfyllt skrafl-gáta ásamt rekka með 7 bókstöfum — og verkefni leikmanna er að finna stigahæstu mögulegu lögnina á borðinu, þ.e. orð sem unnt er að mynda lárétt eða lóðrétt og tengist orði sem fyrir er.

Hitamælirinn hægra megin á myndinni sýnir orð sem leikmaðurinn hefur þegar prófað að leggja niður, allt frá AR (sem gaf 3 stig) og upp í ÞÖKUR (sem gaf 67 stig). Leikmaðurinn hefur samt ekki ennþá fundið bestu mögulegu lögnina, sem gefur 69 stig (talan í græna hringnum efst í hitamælinum). Kemur þú auga á hana? Stafirnir sjö í rekkanum eru ÞKURMRI.

Efst til hægri sést að þetta er gáta 2. febrúar, en unnt er að fara til baka og skoða eldri gátur — og fletta upp lausnum þeirra, ef leikmaður hefur ekki þegar fundið þær. Talan “98” gefur til kynna að 98 leikmenn leystu gátuna daginn sem hún var virk.

Leikmenn keppa bæði um að finna lausnina og að vera fljótir að því. Á stigatöflu sjást 50 stigahæstu leikmenn, í tímaröð innan stigafjölda, þannig að sá sem er fyrstur til að leysa gátuna og finna hæstu lögnina er efstur á stigatöflunni.

Gáta dagsins byggir að hluta á Netskraflinu vinsæla, sem yfir 40.000 Íslendingar hafa einhvern tíma skráð sig til leiks í — á þeim 10 árum sem liðin eru frá því að leikurinn kom fyrst út á vefnum.

Hugmyndin að Gátu dagsins kviknaði í svokölluðu hakkaþoni innan Miðeindar. Miðeind heldur reglulega hakkaþon innanhúss, þar sem starfsfólk skiptir sér í lið og hefur sirka viku til að breyta hugmynd hratt í frumgerð. Í lok hakkaþonsins fer fram kynning þar sem liðin sýna afraksturinn og dást að snilli hvers annars. Í tilviki Gátu dagsins var hakkaþonið með leikjaþema; alls kyns hugmyndir að leikjum og skemmtilegheitum sem tengjast íslensku og íslenskri menningu voru þróaðar og kynntar.

Eftir hakkaþonið var ákveðið að fullþróa Gátu dagsins. Frumgerðinni var hent í ruslið, en ný kerfishögun mótuð sem fléttaðist saman við flutning Netskraflsins inn á Málstað.

Kjarni Gátu dagsins er skraflvél Miðeindar, sem skrifuð er í forritunarmálinu Go og er afar hraðvirk. Hún nýtir samhliða vinnslu á nútíma örgjörvum sem eru með marga vinnslukjarna innanborðs. Það þýðir að vélin setur í gang marga ferla (nánar tiltekið 30, einn fyrir hverja línu og hvern dálk skraflborðs) sem vinna samtímis að því að finna mögulegar lagnir á gefnu borði.

Fyrir hvern dag gátunnar er skraflvélin er látin spila fjölda viðureigna gegn sjálfri sér, uns upp kemur staða á borðinu sem þykir vænleg. Slík staða hefur meðal annars eftirfarandi eiginleika:

  • Það verður að vera eitt og aðeins eitt besta lausnarorð.

  • Því meir sem lausnarorðið sker sig úr öðrum mögulegum lögnum, því betra.

  • Lausnarorðið má þó ekki vera of augljóst, til dæmis spanna tvo þreföldunarreiti og vera þar með margfalt betra en nokkuð annað mögulegt orð.

  • Lausnarorðið verður að vera sæmilega algengt í íslenskum texta.

  • Orðið má ekki vera of stutt, og því lengra, því betra.

  • Besta mögulega skorið verður að vera a.m.k. 30 stig.

Þegar safnað hefur verið saman 100 vænlegum gátum fyrir hvern dag, er sú besta af þeim valin. Öll sú vinnsla og síun sem fram fer veldur því að það tekur nokkrar mínútur af útreikningum á öflugri tölvu — þrátt fyrir að skraflvélin sé mjög hraðvirk — að útbúa ~30 gátur fyrir heilan mánuð af Gátu dagsins.

Gátur dagsins eru venjulega reiknaðar og útbúnar fyrirfram, og geymdar í gagnagrunni uns þær eru birtar. En kóðinn getur jafnframt búið þær til jafnóðum ef þörf krefur.

Gátu dagsins hefur verið mjög vel tekið. Jafnan upphefst mikið kapphlaup meðal landsins færustu krossgátuhvíslara upp úr miðnætti og snemma morguns um að komast inn á Topp-50 stigatöfluna, hvað þá í þrjú efstu sætin, sem gefa gull, silfur og brons-medalíu.

Gátan er opin öllum og ókeypis. Það eina sem þarf til að taka þátt er að vera innskráður á Málstað. Prófaðu gátu dagsins á gatadagsins.is!

P.S. Lausnin á gátunni 2. febrúar er ÞÖKUM (í stað ÞÖKUR), sem gefur 69 stig!

Skráðu þig á póstlistann okkar!

Efnisorð:
Deildu þessari grein: