Viltu skila frá þér fagmannlegri og fínpússaðri texta?
Málfríður notar gervigreind til að greina og lagfæra stafsetningu, málfræði og stíl í texta á augabragði. Málfríður býður einnig upp á að fá samantekt á texta, svo sem á formi fundargerðar, þar sem dagskrá, umræður og ákvarðanir eru dregnar saman á hnitmiðaðan hátt á íslensku og skipt upp eftir umfjöllunarefnum.
Málfríður hentar öllum sem vilja lyfta skrifum sínum upp á næsta stig og sparar tíma og fyrirhöfn.
Leiðréttingar með hjálp gervigreindar: Málfríður beitir öflugri gervigreindartækni til að greina flóknar málfræði- og stílvillur sem hefðbundin leiðréttingartól koma ekki auga á.
Sniðmát: Texti sem er afritaður inn í viðmót Málfríðar heldur sniðmáti sínu, s.s. feitletrun, leturgerð og öðru í þeim dúr. Það er því auðvelt að láta Málfríði lesa yfir staka kafla í ritgerð eða skýrslu.
Notendavænt viðmót: Málfríður er auðveld í notkun, hvort sem þú ert byrjandi eða sérfræðingur í ritun. Málfríður er hönnuð með þægindi notandans í huga.
Fundargerðir upp úr flóknu efni: Málfríður býður einnig upp á samantekt á textaefni. Hægt er að senda texta beint inn í samantektina úr Málfríði með töfratakkanum, en einnig er hægt að tengja aðrar lausnir Málstaðar inn í lengra flæði. Þannig er hægt að senda upptöku af fundi inn í Hreim til talgreiningar og fá út uppskrifað handrit fundarins með tímakóðum. Þaðan má senda handritið til samantektar Málfríðar, og fá út hnitmiðaða fundargerð. Loks er hægt að senda fundargerðina til Erlends og fá hana þýdda á fjölmörg tungumál.
Hvernig nota ég Málfríði?
Viðmót Málfríðar er einfalt. Þú getur skrifað beint inn í viðmótið, afritað inn texta eða hlaðið upp skrá. Málfríður tekur fljótt við sér, greinir textann sjálfkrafa og bendir á atriði sem má bæta. Þú færð síðan val um að samþykkja eða hafna tillögum, sem gefur þér fulla stjórn á endanlegri útgáfu textans. Töfratakkinn í tækjastikunni gefur áskrifendum enn umfangsmeiri virkni, svo sem samantekt, að hlaða inn skjölum og að senda í þýðingu í Erlend. Hvort sem þú ert að skrifa bók, undirbúa kynningu, eða vilt einfaldlega skrifa betri tölvupósta, þá er Málfríður öflugt verkfæri sem hjálpar skilaboðum þínum að hitta í mark.