Ritstjórn
24.3.2026
Það er alltaf gaman að fá áhugavert fólk í heimsókn á skrifstofuna okkar á Granda. Mars hefur verið sérstaklega líflegur hjá okkur en við höfum fengið þrjá áhugaverða hópa í vísindaferðir til okkar undanfarnar vikur. Það má með sanni segja að þessar heimsóknir gefi okkur jafn mikið og gestunum.
Til að byrja með fengum við heimsókn frá Skvísó, sem er samstarf Ödu, hagsmunafélags kvenna og kvára í upplýsingatækni við HÍ, og Systra, hagsmunafélags kvenna innan tölvunarfræðideildar HR. Það var sérstaklega ánægjulegt að taka á móti þessum flotta hóp sem sýndu mikinn áhuga á því sem við erum að gera hjá Miðeind. Við ræddum máltækni og gervigreind og gáfum innsýn í þróun Málstaðar.
Næst fengum við heimsókn frá félagsfólki SKÝ, félagi fyrir fólk og fyrirtæki í upplýsingatækni. Í þeirri heimsókn fórum við yfir það sem Miðeind hefur fengist við á þeim áratug sem fyrirtækið hefur starfað. Þar var meðal annars farið yfir þróun máltækni á Íslandi, samstarf við alþjóðleg tæknifyrirtæki og hvernig við höfum byggt upp lausnir sem styðja íslenska tungu í stafrænum heimi.
Í síðustu viku fengum við svo kennara frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í vísindaferð. Það var virkilega gaman að fá þau til okkar og eiga góð samtöl um tækni, tungumál og framtíðina. Kennarar gegna lykilhlutverki í því að móta næstu kynslóð og því sérstaklega dýrmætt að fá þeirra sjónarhorn á þróunina og ræða hvernig máltækni og gervigreind geta nýst í námi og kennslu.
Það sem stendur upp úr eftir þessar heimsóknir er áhuginn. Fólki er umhugað að skilja hvað er að gerast í tækninni, hvert hún er að fara og hvernig hún hefur áhrif á íslenskt samfélag og tungumál. Þessar samræður skipta máli, þær halda okkur á tánum og minna okkur á af hverju við erum að þessu.
Við viljum þakka öllum hópunum kærlega fyrir komuna, fyrir áhugann og spurningarnar. Það er alltaf hvetjandi að hitta fólk sem hefur raunverulegan áhuga á því sem við erum að byggja upp.
Öllum er velkomið að hafa samband við okkur ef áhugi er á að koma með hóp í vísindaferð. Við tökum vel á móti hópum sem vilja kynna sér starfsemina, fá innsýn í verkefnin okkar og eiga opið samtal um tækni og framtíð íslenskunnar.
Ef þú vilt fylgjast með frekari verkefnum hjá Miðeind getum við látið þig vita þegar eitthvað nýtt er að frétta.