Ritstjórn
6.6.2025
Miðeind ehf. hefur gengið frá samningi við Forlagið ehf. um kaup á Snöru ehf., sem rekur samnefnt vefbókasafn og á stafrænan birtingarrétt ýmissa þekktra orðabóka og heimilda. Með kaupunum sameinast tvö lykilfyrirtæki á sviði íslenskrar máltækni og stafrænna tungumálalausna með það að markmiði að efla stöðu íslensku í stafrænum heimi.
Miðeind, sem var stofnuð árið 2015, er leiðandi hugbúnaðarfyrirtæki á sviði máltækni og gervigreindar, með áherslu á íslenskt mál. Frá upphafi hefur stefna og tilgangur Miðeindar verið að þróa tæknilausnir sem gera íslensku aðgengilega og nothæfa í stafrænu samhengi. Ein helsta þjónusta Miðeindar er Málstaður, opin veflausn sem sameinar máltæknilausnir fyrirtækisins í einu notendavænu viðmóti. Undir Málstað eru fjórar lykilvörur: Málfríður, sem aðstoðar við ritun og málfarsleiðréttingu, Hreimur, sem umbreytir töluðu máli í texta, Erlendur, vélþýðingarlausn sem styður mörg tungumál, og Svarkur, sem er spurningasvörunar- og leitarlausn. Þá heldur Miðeind úti stafrænni samheitaorðabók á vefnum samheiti.is en orðabókin var búin til með hjálp gervigreindar.
Snara er frumkvöðull í miðlun stafrænna orðabóka fyrir íslenskt málumhverfi. Í vefgátt fyrirtækisins geta notendur fengið aðgang að víðtæku úrvali orðabóka og málheilda á íslensku og erlendum málum. Krúnudjásn Snöru eru án efa Íslensk orðabók Menningarsjóðs og Ensk-íslensk orðabók með alfræðiívafi Þá má finna á Snöru orðstöðulykil úr verkum Halldórs Laxness, íslensk-ítalska og íslensk-spænska orðabók og úrval mataruppskrifta, svo fátt eitt sé nefnt.
„Kaup Miðeindar á Snöru eru gríðarleg lyftistöng fyrir íslenska máltækni,“ segir Linda Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Miðeindar. „Sameiningin gerir okkur kleift að flétta saman gagnasöfn Snöru og tækni Miðeindar til þess að bæta notendaupplifun og auka fjölbreytni, en Miðeind hefur náð góðum árangri í að nota gervigreind til þess að auðga orðabókargögn og skapa nýjar málheildir. Gervigreind fleygir fram um þessar mundir og gæðagögn eru algjört lykilatriði í að tryggja stöðu íslenskunnar í þessari öflugu tækni.“
Kaupin eru liður í langtímastefnu Miðeindar, sem snýr að því að efla íslenska máltækni og tryggja framtíð íslenskrar tungu í stafrænum heimi. Engar breytingar verða á þjónustu Snöru fyrst um sinn, en á næstu mánuðum verður unnið að samþættingu kerfa og verður framsetning vefbókasafnsins uppfærð í kjölfarið í takt við nýjustu tækni og þarfir notenda.